Innlent

Sjúkrabílaskýli reist við slökkvistöð

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Það styttist í afhendingu slökkvistöðvar í Mosfellsbæ.
Það styttist í afhendingu slökkvistöðvar í Mosfellsbæ. Fréttablaðið/GVA
Hefjast á handa við að byggja sjúkrabílaskýli við nýja slökkvistöð sem byggð hefur verið í Mosfellsbæ.

Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri segir bygginguna hafa dregist vegna óvissu um samninga við ríkið um sjúkraflutninga. Nú þegar þeir séu í höfn sé ekkert að vanbúnaði. Verið sé að ráða starfsfólk sem upp á vanti og vonast til að nýja slökkvistöðin verði tekin í notkun fljótlega á nýju ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×