Innlent

Sjúkir Mosfellingar sóttir allt of seint

Íbúar Mosfellsbæjar eru langverst settir hvað varðar viðbragðstíma sjúkrabíla á höfuðborgarsvæðinu. Í minna en tíu prósentum tilfella var sjúkrabíll í forgangsakstri kominn til Mosfellsbæjar undir viðmiðunarmörkum, sem eru átta mínútur, á síðasta ári.



Í Reykjavík, Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi og Álftanesi var hlutfallið 60 til 70 prósent. Seltjarnarnes er í næstneðsta sæti, með fjörutíu prósent neyðarútkalla undir viðmiðunarmörkum.



Aðalástæðan fyrir þessum mjög slæma viðbragðstíma til Mosfellsbæjar er óheppileg staðsetning slökkvistöðvarinnar við Tunguháls. Of langan tíma tekur fyrir sjúkrabílana að komast út á Vesturlandsveginn, og þaðan í Mosfellsbæ.



Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu Margrétar Maríu Leifsdóttur, sérfræðings á greiningasviði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Tölfræðin er meðal annars notuð til að finna bestu staðsetningu slökkvistöðva. Byrjað var að greina viðbragðstíma neyðarútkalla árið 2005.



Margrét segir að í bígerð sé að leggja niður stöðina við Tunguháls og reisa nýja hjá Vesturlandsvegi við rætur Úlfarsfells. Ætlunin er að taka hana í gagnið árið 2009. Með því móti ætti viðbragðstími til Mosfellsbæjar að komast í eðlileg horf. Þangað til verða Mosfellingar að sætta sig við verri þjónustu en aðrir á höfuðborgarsvæðinu.



Viðbragðstími er skilgreindur sem tíminn sem líður frá því að símtal berst Neyðarlínunni og þar til sjúkraliðar eru komnir til sjúklingsins. Hver sekúnda skiptir máli þegar um slasaða er að ræða, og því eru viðmiðunarmörkin átta mínútur hvert sem er á höfuðborgarsvæðinu.



Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir vissulega rétt að Mosfellsbærinn sé illa settur hvað varðar viðbragðstíma. „Nú þegar búið er að greina vandann og meta gæði þjónustunnar verður gripið til ráðstafana og slökkvistöðvum höfuðborgarsvæðisins fjölgað.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×