Innlent

Sjötugur ákærður fyrir að hafa slegið mann með riffli

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/gva
Ríkissaksóknari hefur ákært sjötugan karlmann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Árásin átti sér stað í sumarhúsi á Suðurlandi árið 2012 en maðurinn er sakaður um að hafa slegið annan mann ítrekað með riffli meðal annars í höfuðið. Sá sem varð fyrir árásinni kjálkabrotnaði, hlaut mar víðs vegar um líkamann og þurfti í kjölfarið að undirgangast aðgerð.

Krafist er að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar ásamt rúmlega tveimur milljónum króna í bætur.

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Suðurlands á fimmtudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×