Körfubolti

Sjötta þrennan í röð hjá Westbrook og Klay skoraði 60 | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Russell Westbrook heldur áfram að fara á kostum í NBA-deildinni í körfubolta en hann hlóð í sjöttu þrennuna í röð í nótt þegar að Oklahoma City Thunder vann Atlanta Hawks, 102-99, á útivelli.

Westbrook skoraði 32 stig, tók þrettán fráköst og gaf tólf stoðsendingar í leiknum en næstur í hans liði kom Anthony Morrow sem skoraði 15 stig af bekknum.

Westbrook er nú búinn að ná ellefu þrennum á tímabilinu sem er jafnmikið og allir hinir leikmennirnir til samans. Marc Gasol, leikmaður Grizzlies, náði þeirri elleftu í keppni deildarinnar við Westbrook í sigri Memphis í nótt.

Það var samt ekki bara Westbrook sem var heitur í nótt því Klay Thompson, leikmaður Golden State Warriors, var sjóðandi í stórsigri Warriors á Indiana á heimavelli, 142-106. Thompson skoraði 60 stig sem er persónulegt met hjá honum í einum leik og flest stig sem leikmaður Warriors hefur skorað í einum leik í 42 ár.

Thompson skoraði 40 af 60 stigunum í fyrri hálfleik en hann skoraði átta þriggja stiga körfur í fjórtán tilraunum, Kevin Durant kom næstur með 20 stig og Steph Curry var rólegur með þrettán stig.

Þá átti Lebron James flottan leik fyrir Cleveland sem komst aftur á sigurbraut með 116-112 sigri á Toronto á útivelli. Cleveland var fyrir leikinn búið að tapa þremur í röð. LeBron skoraði 34 stig tók átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia 76ers - Denver Nuggets 98-106

Toronto Raptors - Cleveland Cavaliers 112-116

Brooklyn Nets - Washington Wizards 113-118

Atlanta Hawks - OKC Thunder 113-118

Portland Trail Blazers - Chicago Bulls 112-110

Milwaukee Bucks - San Antonio Spurs 96-97

New Orleans Pelicans - Memphis Grizzlies 108-110

Houston Rockets - Bostol Celtics 107-106

Dallas Maverics - Charlotte Hornets 101-109

LA LAkers - Utah Jazz 101-107

Golden State Warriors - Indiana Pacers 142-105

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×