Innlent

Sjötíu ár í dag frá björgunarafrekinu við Látrabjarg

Kristján Már Unnarsson skrifar
Björgun skipbrotsmanna togarans Sargon, sem strandaði undir Hafnarmúla við Örlygshöfn 1. desember 1948, var notuð í heimildarmyndinni um björgunarafrekið við Látrabjarg ári áður.
Björgun skipbrotsmanna togarans Sargon, sem strandaði undir Hafnarmúla við Örlygshöfn 1. desember 1948, var notuð í heimildarmyndinni um björgunarafrekið við Látrabjarg ári áður. Mynd/Óskar Gíslason.
Það er af mörgum talið frækilegasta björgunarafrek Íslandssögunnar, þegar tólf sjómönnum var bjargað úr breskum togara sem strandað hafði undir Látrabjargi. Það var nákvæmlega í dag fyrir sjötíu árum sem björgunarmönnum tókst að ná mönnunum í land en fyrir afrekið sæmdi Georg sjötti Bretakonungur þá æðsta heiðursmerki Breta. Atburðurinn var rifjaður upp í fréttum Stöðvar 2. 

Heimildarmynd Óskars Gíslasonar varðveitir söguna um björgunarafrekið. Það er þó ekki strand togarans Dhoon þann 12. desember árið 1947 sem sést á myndunum heldur vildi svo til að annar breskur togari, Sargon, strandaði við Örlygshöfn í Patreksfirði ári síðar þegar Óskar var að taka upp myndina.

Í báðum tilvikum var línu skotið út í togarann og skipbrotsmenn svo dregnir í land í björgunarstól en aðstæður voru hrikalegar í fjörunni undir Látrabjargi. Þrír skipverjar fórust en tólf tókst að bjarga um þrjátíu klukkustundum eftir strandið. 

Björgunarmenn komu úr sveitunum í kring; frá Hvallátrum, Hænuvík, Breiðavík, Kollsvík og Keflavík. Mesta afrekið var ekki síst að komast á strandstaðinn undir bjarginu og síðan að ná skipbrotsmönnum upp níutíu metra háa þverhnípta hamrana og upp á sjálft bjargið. Loks þurfti að koma köldum sjómönnunum til byggða í hlý hús.

Þessi skýringarmynd Gísla Más Gíslasonar prófessors af Látrabjargi lýsir aðstæðum á strandstað.Mynd/Gísli Már Gíslason.
Fyrir björgunina voru 24 Íslendingar, þar á meðal þrjár konur, sæmdir margskyns heiðursmerkjum, þar af sæmdi Bretakonungur fimm Íslendinga æðsta heiðursmerki Breta fyrir björgun úr sjávarháska, þá Andrés Karlsson, Bjarna Sigurbjörnsson, Daníel Eggertsson, Hafliða Halldórsson og Þórð Jónsson. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 með mögnuðum myndum Óskars Gíslasonar, sem Kvikmyndasafn Íslands varðveitir:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×