Skoðun

Sjónauki inn í framtíðina

Þórey Vilhjálmsdóttir og Magnús Orri Schram skrifar
Veitingahúsið Ramona í Sao Paulo í Brasilíu vakti mikla athygli þegar það bauð gestum sínum misréttismatseðil (The Unfair Menu) fyrr á þessu ári. Allir réttir á matseðlinum voru 30 prósentum dýrari fyrir karlmenn og var markmiðið að endur­spegla launamun kynjanna í Brasilíu. Þeir sem voru ósáttir við þessa mismunun fengu bækling með tölfræðiupplýsingum um launamun kynjanna.

Hvers vegna voru veitingamennirnir að gera þetta? Jú, þeir voru að höfða til síns neytendahóps. Það verður stöðugt mikilvægara að fyrirtæki skilji breytingar á viðhorfum eða væntingum neytenda þegar ytri aðstæður, t.d. ný tækni, leysa úr læðingi nýjar leiðir til að þjóna og höfða til grunnþarfa þeirra. Að fylgjast vel með straumum og stefnum (trends) sem snerta lífshætti og þarfir viðskiptavina á að vera hluti af stefnumótun og vöruþróun fyrirtækja.

Vörumerkið er vinur

Einn af mörgum meginstraumum á neytendamarkaði er ­krafan um að vörumerki séu með „mannlega eiginleika“. Neytendur sækja í vörumerki sem búa yfir sömu eiginleikum og þeir kunna að meta í fari fólks. Vörumerki eða fyrirtæki sem eru heiðarleg, sanngjörn og ástunda samfélagslega ábyrgð. Rétt eins og veitingastaðurinn í Sao Paulo. Þeir aðilar sem eingöngu virðast hugsa um að hámarka eigin hag falla í skuggann.



Og réttir hjálparhönd


Annar mikilvægur meginstraumur er þörf neytenda fyrir vörur og þjónustu sem einfalda daglegt líf, auka þægindi og gera hlutina auðveldari. Eftir því sem líf okkar verður flóknara eykst eftirspurn eftir þjónustu sem hjálpar okkur að komast í gegnum daginn.

Starbucks hefur til dæmis innleitt svokallaða tímagjafaþjónustu (Time saviour). Þar gefst viðskiptavinum kostur á því að panta kaffi, greiða fyrir fram með „appi“ og sækja síðan á ákveðnum tíma á næsta kaffihús. Gott dæmi um svipaða þjónustu á Íslandi er fyrirtækið Eldum rétt sem útvegar hráefni og uppskriftir að góðum heimilis­mat og viðskiptavinurinn þarf eingöngu að elda. Þjónusta sem í raun uppfyllir báða þá meginstrauma sem hér er minnst á; hefur mannlega eiginleika og einfaldar líf viðskiptavina.



Meginstraumar innleiddir í stefnu


Það er nauðsynlegt fyrir fyrir­tæki í harðri samkeppni að fylgjast vel með meginstraumum og aðlaga þannig stefnu fyrirtækisins breytingum á neytendamarkaði. Hvaða megin­straumar eru mikilvægir? Hvaða áhrif hafa þeir á markaðinn sem starfað er á? Hvaða áhrif hafa þeir á viðskiptavini? Hverju þarf að breyta til þess að mæta þessari þörf?

Helsta markmiðið með slíkri vinnu er ekki að vera á undan keppinautunum heldur að sjá fyrir hvernig þarfir neytenda eru að breytast. Gæta þess ­þannig að vöru- og þjónustuframboð fyrirtækisins mæti óskum og væntingum viðskiptavina og gott betur. Þeir sem skynja og skilja straumana (trends) vita hvernig á að koma til móts við viðskiptavininn.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×