Erlent

Sjónarvottar í Nice lýsa árásinni: „Við heyrðum hljóðið þegar trukkurinn keyrði á fólkið“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Einn af fórnarlömbum árásanna í Nice í gærkvöldi.
Einn af fórnarlömbum árásanna í Nice í gærkvöldi. vísir/getty
Maciej Czarnecki er við tungumálanám í Nice. Hann sá þegar trukkurinn keyrði inn í mannfjöldann í miðborginni á miklum hraða í gærkvöldi en að minnsta kosti 84 létust í árásinni. Þá eru átján alvarlega særðir á gjörgæslunni. Talið er líklegt að um hryðjuverkaárás sé að ræða en enn hafa engin samtök lýst ábyrgðinni á hendur sér.

„Við höfðum farið út í nokkra drykki og vorum á leiðinni niður á strönd þegar við vorum eiginlega stöðvuð af mannfjöldanum sem var að yfirgefa svæðið. Allt í einu, aðeins nokkrum metrum frá okkur, sáum við stóran hvítan sendiferðabíl,“ segir Czarnecki í samtali við Guardian.

Sjá einnig: Allt um ódæðið í Nice

„Við heyrðum hljóðið þegar trukkurinn keyrði á fólkið, það var eins og tómt holhljóð. Fólk byrjaði að hlaupa burt í sjokki. Þegar ég var að labba til baka sá ég fólk hágrátandi á götunum á meðan verið var að leiða aðra í burtu.“

Anne Morris sá fólk flýja þar sem hún sat á bar í gamla bænum í Nice.

„Hundruð manns hlupu framhjá barnum. Við náðum ekki neinu netsambandi svo enginn vissi hvað hafði gerst. Barinn lokaði og við fórum heim þar sem okkur hafði verið ráðlagt að vera ekki úti. Á leiðinni heim fékk ég sms um hvað hafði gerst. Þetta er hræðilega sorglegt.

Chris sem er frá Edinborg er á leiðinni en hún hefur verið í fríi í Nice síðan á mánudag. Hún var ásamt maka sínum að horfa á flugeldana í gærkvöldi.

„Við ákváðum að fara og fá okkur ís. Allt virtist í himnalagi þó að þegar ég líti til baka þá virðist það vera mjög skrýtið að bílar hafi verið að reyna að komast í gegnum mannþröngina. Það var einn bíll sem var að flauta alla og segja þeim að fara frá og ég hélt að bílstjórinn væri bara að vera dónalegur.“

Chris segir að svo hafi þau séð hundruð manna á hlaupum.

„Mikil skelfing greip um sig og þetta var hryllilegt. Enginn virtist vita hvað var að gerast, fólk bara hljóp.“


Tengdar fréttir

Ólafur Ragnar sendir Hollande samúðarkveðjur

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur sent Francois Hollande Frakklandsforseta samúðarkveðju frá sér og íslensku þjóðinni vegna voðaverkanna í Nice í Frakklandi í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×