Innlent

Sjón og kollegar hans skora á Pútín

Sjón er í hópi 200 rithöfunda sem sendu rússneskum yfirvöldum opið bréf í Guardian.
Sjón er í hópi 200 rithöfunda sem sendu rússneskum yfirvöldum opið bréf í Guardian.
Lögin sem samþykkt hafa verið að undanförnu í Rússlandi og setja verulegar skorður á umræðu um samkynhneigð og guðlast eru ógn við frelsið. Þetta segja tvöhundruð rithöfundar frá þrjátíu löndum sem í dag birta opið bréf í breska blaðið Guardian þar sem þeir skora á Vladímír Pútín Rússlandsforseta að nema lögin úr gildi.



Skáldið Sjón, handhafi íslensku bókmenntaverðlaunanna, er á meðal þeirra sem skrifa undir bréfið. Af öðrum höfundum má nefna Nóbelsverðlaunahafana Gunter Grass, Wole Soyinka, Elfriede Jelinek og Orham Pamuk. Þá eru á listanum heimsþekktir höfundar á borð við Margaret Atwood, Salman Rushdie, Neil Gaiman, Carol Ann Duffy  og Jonathan Franzen, svo nokkrir séu nefndir.

Eitt fremsta núlifandi skáld Rússa, Ludmyla Úlitskaija, er einnig á meðal þeirra sem skrifa undir.

Í bréfinu er bent á að rússneskir rithöfundar og blaðamenn hafi ávallt reynt að láta í sér heyra, sama hvað gengið hefur á í hinni viðburðarríku sögu Rússlands. Lögin sem samþykkt hafi verið síðustu átján mánuði í landinu geri þeim nú svo erfitt fyrir að segja má að tjáningafrelsið sé nú í kverkataki lagasetninga.

Rithöfundarnir segjast ekki geta staðið hljóðir hjá og fylgst með kollegum sínum í Rússlandi setja sig í bráða hættu með því einu að tjá skoðanir sínar og hugsanir. Þeir benda á að heilbrigt lýðræði þrífist ekki nema raddir allra fái að heyrast og að alþjóðasamfélagið verði að fá að heyra fjölbreyttar skoðanir Rússa.

Þessvegna skora þeir á Pútín og samstarfsmenn hans að afturkalla lögin og átta sig á skyldum yfirvalda með tilliti til alþjóðalaga til að viðurkenna félagsleg og pólitísk réttindi og virða skoðanafrelsið, tjáningafrelsið og trúfrelsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×