Innlent

Sjómenn sjá til lands í viðræðum við útgerð

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Sjómenn hafa verið samningslausir frá því í ársbyrjun 2011. Þá hefur greint á við útgerðarmenn um hluti á borð við mönnun og þátttöku í kostnaði við útgerðina.
Sjómenn hafa verið samningslausir frá því í ársbyrjun 2011. Þá hefur greint á við útgerðarmenn um hluti á borð við mönnun og þátttöku í kostnaði við útgerðina. vísir/jse
„Við erum að vonast til þess að geta lokið þessu í næstu viku, annað hvort af eða á,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands um kjaraviðræður sjómanna við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS, áður LÍÚ).

„Vonandi tekst að klára þetta,“ segir Valmundur og tekur undir að slæmar fréttir yrðu ef niðurstaðan í viðræðunum yrði af en ekki á. „En við erum náttúrlega fullir bjartsýni og vonumst til þess að klára málið með samningi líkt og virðist í pípunum, en svo náttúrlega veit maður aldrei hvað verður.“

Valmundur segir að fundað hafi verið bæði formlega og óformlega hjá ríkissáttasemjara, þar af tveir óformlegir fundir í byrjun þessarar viku. „Þannig að það er gangur í þessu,“ segir hann.

Enn sé þó ekki búið að negla niður tíma fyrir formlegan fund hjá ríkissáttasemjara í næstu viku.

„Það á eftir að hnýta nokkra lausa enda og eftir það verður boðað til fundar,“ segir Valmundur. Einnig verði fundað eftir helgina með „stóru“ samninganefnd sjómanna. „Svona til þess að fara yfir hvað við erum að gera og fá leyfi til að skrifa undir.“ 

Viðræður sjómanna og útgerðarmanna voru teknar upp á ný á síðasta ári, en sjómenn hafa verið samningslausir frá því í ársbyrjun 2011.

Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands
Nokkur kurr var kominn í sjómenn þegar upp úr viðræðum slitnaði í desember og var gengið í það milli jóla og nýárs að kanna hug sjómanna til mögulegra verkfallsaðgerða. Á nýja árinu var orðið ljóst að vilji sjómanna væri til að taka slaginn.

Viðræður voru hins vegar teknar upp að nýju í mars og hefur verið nokkur gangur í þeim síðan þá. Reyna átti til þrautar að ná lendingu í viðræðum til að forða aðgerðum. Helstu ágreiningsefni voru tekin út fyrir sviga og stefnt að því að ná samningi sem næði utan um þá þætti sem menn gætu komið sér saman um.

Meðal ágreiningsefna sem ákveðið hefur verið að halda fyrir utan viðræðurnar nú eru krafa sem sjómenn hafa haft á lofti um að allur afli fari á markað og kröfur útgerðarmanna um aukna þátttöku sjómanna í kostnaði við útgerðina, þar á meðal veiðigjöldum og olíukostnaði. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. apríl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×