Innlent

Sjómenn samþykktu með naumindum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Skipverjar á Ásbirni RE-50 voru í óðaönn að gera sig klára til að fara út þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði.
Skipverjar á Ásbirni RE-50 voru í óðaönn að gera sig klára til að fara út þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði. vísir/anton
Sjómenn samþykktu í gær kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Það var mjótt á mununum en samningurinn var samþykktur með 52,4 prósent greiddra atkvæða.

Það voru stressaðir fulltrúar útgerðarinnar sem biðu í húsakynnum ríkissáttasemjara meðan talning stóð yfir. Sjómenn felldu í tvígang fyrri samninga og hefur verkfall staðið yfir í rúma tvo mánuði frá því að það gerðist seinna skiptið. Það sló ekki á stressið þegar fyrir lá að kjörsókn var dræm eða um 53 prósent. Þungu fargi var létt af samningamönnum þegar niðurstaðan var kynnt.

„Við erum mjög ánægð og þetta er mikill léttir. Það er stór kostur að sjómenn hafi samþykkt samning,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS. „Brýnasta verkið er að koma skipunum út á sjó og ná þessari loðnu. Síðan taka við önnur mál sem hafa setið á hakanum meðan á þessu hefur staðið.“

Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins.vísir/anton
„Þetta var tæpt en það hafðist,“ segir Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambandsins. „Nú tekur við vinna við samninginn og að koma honum í framkvæmd. Það er hellings vinna framundan í sambandi við fiskverðið og nýja kerfið þar.“

Þegar uppi er staðið telur Valmundur að skynsemin hafi ráðið för þegar menn greiddu atkvæði um samninginn. Hann þakkar þeim fjölmörgu sem komu að því að kynna samninginn og telur að það hafi tekist vel. Mörgum hafi snúist hugur við þá kynningu. Ýmsir voru neikvæðir í garð sjómannaforystunnar og létu þá skoðun sína í ljós.

„Ég tók þá ákvörðun að láta það ekki á mig fá,“ segir Valmundur um umræðuna. Þá hafi honum sjálfum borist skeyti en hann viti lítið um innihald þeirra. „Ég skoðaði þau ekki. Menn verða bara að eiga þetta við sjálfa sig.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fagnar niðurstöðunni. Hún segir það mikilvægt fyrir sjávarútveginn að sjómenn og útvegsmenn hafi náð saman. Þorgerður vill ekki gefa upp hvort lög hefðu verið sett á verkfallið ef niðurstaðan hefði orðið önnur. Samningurinn hafi verið samþykktur og því óþarfi að velta öðru fyrir sér. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×