Innlent

Sjöfn sættir sig ekki við vinnubrögð Tjarnarverks: „Farin út og er húsnæðislaus“

Birgir Olgeirsson skrifar
Sjöfn Garðarsdóttir.
Sjöfn Garðarsdóttir. Vísir/Facebook
„Ég er farin út og er húsnæðislaus í dag,“ segir Sjöfn Garðarsdóttir sem er ein þeirra íbúa í Reykjanesbæ sem bjó í íbúðunum sem Tjarnarverk ehf. keypti af Íbúðalánasjóði í maí síðastliðnum.

Um er að ræða 90 íbúðir og hefur Vísir fjallað um óánægju íbúa þeirra með þann leigusamning sem Tjarnarverk hefur boðið þeim og er í mörgum tilvikum um að ræða tugþúsunda hækkun á mánaðargreiðslum vegna leigusamnings.

Sjöfn segir ástand íbúðarinnar slæmt.Vísir/Facebook
Sjöfn segist hafa gert nýjan leigusamning við Íbúðalánasjóð um mánaðamótin apríl maí þar sem leigan var hækkuð úr 92 þúsund krónum í 99 þúsund krónur.

Tjarnarverk keypti síðan íbúðina sem hún leigði við Hjallaveg 3 í Njarðvík af Íbúðalánasjóði og vildi í kjölfarið hækka leiguverðið um 33 prósent, eða upp í 130 þúsund fyrir mánuðinn.

„Ég var með nýjan samning en Tjarnarverk vildi meina að það væri enginn gildandi leigusamningur. Ég er farin út og er húsnæðislaus í dag,“ segir Sjöfn sem segir ástand íbúðarinnar hafa verið afar slæmt og þurft að búa við myglusvepp og rakapöddur og hafi hún og sonur hennar glímt við veikindi vegna þess.

Sjöfn segist ekkert hafa heyrt frá Tjarnarverki eftir að hún fór úr íbúðinni.

Sjálf vill hún búa áfram Reykjanesbæ en segir fáar íbúðir á lausu. Hún er öryrki og sonur hennar langveikur. „Hann vinnur í Fjölsmiðjunni og þarf á meðferðum að halda. Það er mikið í húfi fyrir hann að þurfa að breyta um umhverfi.“

Uppfært 19:50: Sjöfn segir í samtali við Vísi nú undir kvöld að það hafi ekki verið rétt hjá sér líkt og fram kom í fyrri útgáfu fréttarinnar, að forsvarsmenn Tjarnarverks hafi sagt að hún mætti ekki fara úr eigninni. Hún segist hafa fengið val um tvo kosti - annað hvort að skrifa undir nýjan samning eða fara út.


Tengdar fréttir

„Það er verið að flæma okkur í burtu“

Fjölmargir íbúar í Reykjanesbæ fengu bréf í póstinum í vikunni. Þar var þeim tilkynnt að innan nokkurra daga, þann 1. júlí, myndi leiguverð hækka um tugi þúsunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×