Fótbolti

Sjóðheitur Viðar orðaður við Brighton

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar hefur skorað sex mörk í síðustu fimm leikjum Malmö.
Viðar hefur skorað sex mörk í síðustu fimm leikjum Malmö. vísir/epa
Enska B-deildarliðið Brighton hefur áhuga á Viðari Erni Kjartanssyni, framherja Malmö. Þetta herma heimildir Aftonbladet í Svíþjóð.

Brighton, sem tapaði í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni síðasta vor, var áhugasamt um Marcus Antonsson hjá Kalmar sem er markahæstur í sænsku deildinni. Hann ákvað hins vegar að ganga í raðir Leeds United og Brighton hefur því beint sjónum sínum að Viðari.

Útsendarar Brighton sáu leik Malmö og AIK í gær þar sem Viðar skoraði í 1-1 jafntefli. Þetta var níunda mark Viðars á tímabilinu en hann er næstmarkahæstur í sænsku deildinni.

„Ég hef ekki heyrt neitt en ef þú skorar mikið af mörkum vekur það áhuga góðra liða,“ sagði Viðar eftir leikinn í gær.

Viðar er á sínu fyrsta tímabili hjá Malmö en hann kom til sænska liðsins frá Jiangsu Sainty í Kína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×