Innlent

Sjö vikna fríi Sigmundar Davíðs að ljúka

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Vísir/Anton Brink
Hjálmar Bogi Hafliðason, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, reiknar með því að dagar hans á Alþingi þessa vikuna verði þeir síðustu, í bili að minnsta kosti. Hjálmar Bogi hefur staðið vaktina undanfarnar vikur fyrir forsætisráðherrann fyrrverandi Sigmund Davíð Gunnlaugsson síðan hann sagði af sér í kjölfar umfjöllunar um hann og eiginkonu hans í tengslum við Panamaskjölin.

Sigmundur Davíð ákvað að segja af sér sem forsætisráðherra þann 5. apríl en halda áfram sem bæði formaður og þingmaður Framsóknar. Í framhaldinu fór hann í langþráð frí sem nú hefur varið í sex vikur. Hjálmar Bogi segist eiga von á Sigmundi aftur á þing á mánudaginn.

Hjálmar Bogi Hafliðason.
Vill ræða Dettifossveginn í síðustu vikunni

„Það var talað um minnst þrjár vikur í upphafi,“ segir Hjálmar sem var nýlentur á Reykjavíkurflugvelli þegar Vísir náði af honum tali. Bæjarfulltrúinn og kennarinn segir síðustu vikur hafa verið annasamar en hann hafi sinnt þingmennskunni á virkum dögum í höfuðborginni en svo haldið norður yfir helgarnar. 

Hjálmar er spenntur fyrir umræðum um búvörusamninginn, sem verður til umræðu um helgina. Hann hafi rætt þau mál við bændur um helgina en er þó ekki viss um hvort hann taki til máls undir þeim lið í dag. 

Þá ætli hann að reyna að koma sjónarmiðum sínum og sveitunga hans að næstu daga er varða Dettifossveginn. Nauðsynlegt sé að setja peninga í vegagerð á svæðinu og raunar löngu tímabært. Til hefur staðið að markaðssetja veginn frá Húsavík að Ásbyrgi og Hljóðaklettum og þaðan að Dettifossi sem Demantshringinn, en líkt og Hjálmar hefur að undanförnu vakið athygli á á Facebook-síðu sinni verður sá vegur ekki tilbúinn í bráð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×