Erlent

Sjö slasaðir eftir eldingu

vísir/ap
Elding skall á Venice strönd í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær með þeim afleiðingum að sjö slösuðust. Vitni lýsa eldingunni sem gríðar stórri sprengingu sem nánast feykti burt þakplötum á nálægum byggingum. Búið er að loka af sturtuaðstöðu við ströndina en verður hún líklega opnuð að nýju í dag.

Ekki er ljóst hvort fólkið sé alvarlega slasað, en öll voru þau flutt á sjúkrahús til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×