Erlent

Sjö særðir eftir skotárás í skóla norður af Seattle

Atli Ísleifsson skrifar
Mynd af vettvangi.
Mynd af vettvangi. Vísir/AP
Að minnsta kosti sjö særðust eftir að nemandi við gagnfræðiskóla nokkru norður af bandarísku borginni Seattle hóf þar skotárás fyrr í dag.

Að sögn Seattle Times er árásarmaðurinn látinn en samkvæmt heimildum á hann að hafa skotið sjálfan sig til bana. Skotárásin átti sér stað í matsal skólans.

Árásin átti sér stað í Marysville-Pilchuck skólanum sem er um 50 kílómetrum norður af Seattle. Um 2.500 nemendur stunda nám við skólann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×