Handbolti

Sjö mörk Sigvalda vógu þungt í sigri Århus

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigvaldi skoraði sjö mörk úr aðeins átta skotum.
Sigvaldi skoraði sjö mörk úr aðeins átta skotum. mynd/heimasíða århus
Eftir rýra uppskeru í síðustu leikjum vann Århus mikilvægan sigur á Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 29-27, Århus í vil.

Sigvaldi Guðjónsson átti skínandi leik fyrir Århus og skoraði sjö mörk úr aðeins átta skotum.

Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk fyrir Århus og gaf þrjár stoðsendingar og Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk af línunni.

Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi lengst af en í stöðunni 18-18 kom góður kafli hjá Íslendingaliðinu. Århus skoraði fjögur mörk í röð og það bil náði Mors-Thy ekki að brúa.

Århus er í 8. sæti deildarinnar með 11 stig eftir 12 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×