Handbolti

Sjö mörk Arnórs Þórs dugðu ekki til

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór Þór skilaði sínu.
Arnór Þór skilaði sínu. vísir/getty
Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur í liði Bergischer sem tapaði með tveggja marka mun, 26-24, fyrir Stuttgart á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Arnór skoraði sjö mörk úr 11 skotum í leiknum.

Bergischer hefur farið illa af stað á tímabilinu og tapað fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni.

Stuttgart var allan tímann með yfirhöndina og Bergischer komst aldrei yfir í leiknum.

Tveimur mörkum munaði á liðunum í hálfleik, 13-11, og sami munur var á þeim þegar lokaflautið gall. Lokatölur 26-24, Stuttgart í vil.

Björgvin Páll Gústavsson varði níu skot í marki Bergischer sem mætir Füchse Berlin í næsta leik sínum.


Tengdar fréttir

Gott gengi Íslendingaliðanna í Þýskalandi

Rhein-Neckar Löwen er áfram með fullt hús stiga í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir fjögurra marka útisigur, 26-30, á Melsungen í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×