Innlent

Sjö af hverjum tíu hlynntir upptöku gistináttagjalds

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Flestir svarenda eru jákvæðir í garð ferðamanna.
Flestir svarenda eru jákvæðir í garð ferðamanna. vísir/gva
Um sjötíu prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins eru hlynntir upptöku gistináttagjalds. Þetta má lesa úr niðurstöðum könnunar sem unnin var fyrir Höfuðborgarstofu.

Þetta er annað árið í röð sem Höfuðborgarstofa lætur kanna viðhorf íbúa Reykjavíkur og nágrannasveitarfélaga til ferðamanna.

Af þeim sem svöruðu könnunnini sagðist rúmur þriðjungur vera mjög jákvæður í garð ferðamanna og tæplega helmingur vera fremur jákvæður gagnvart þeim. Um fimm prósent voru neikvæð í garð þeirra. Íbúar í Vesturbænum voru neikvæðastir í garð ferðamanna en þrír af hverjum tíu voru neikvæðir eða hlutlausir í þeirra garð.

Rúmlega átta ef hverjum tíu telja að aukinn fjöldi ferðamanna hafi haft jákvæð efnahagsleg áhrif á höfuðborgarsvæðinu en um það bil sami fjöldi telur að tekjur Reykjavíkurborgar séu ekki nægilegar miðað við þann kostnað sem að gestunum hlýst.

Þrír af hverjum fjórum svarendum sögðust aldrei hafa fundið fyrir ónæði af völdum ferðamanna. Átján prósent hafa sjaldan fundið fyrir ónæði en rétt rúm sex prósent hafa stundum, oft eða mjög oft orðið fyrir barðinu á ferðamönnum. Þar skera íbúar miðborgarinnar sig úr en tæplega þrír af hverjum tíu hafa fundið fyrir ónæði.

Könnunin var framkvæmd af Maskínu dagana 11.-26. apríl. Tekið var lagskipt 600 manna slembiúrtak úr póstnúmeri 101 og 250 manna slembiúrstak úr öðrum póstnúmerum Reykjavíkur auk nágrannasveitarfélögum. Svarendur voru 1.786 og svarhlutfall um fimmtíu prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×