Innlent

Sjálfstæðismenn fengju fimm þingmenn í Suðvesturkjördæmi og Framsókn tapar tveimur

Heimir Már Pétursson skrifar
Úr myndveri þar sem oddvitar stærstu flokkanna sátu fyrir svörum.
Úr myndveri þar sem oddvitar stærstu flokkanna sátu fyrir svörum. Vísir/Vilhelm
Sjálfstæðisflokkurinn fengi fimm af þrettán þingmönnum Suðvesturkjördæmis ef kosið yrði nú samkvæmt könnun Stöðvar 2, Fréttablaðsins og Vísis sem greint var frá í kosningaþætti Stöðvar 2. Framsóknarflokkurinn tapar tveimur af þremur þingmönnum sínum.

Nokkur breyting verður á skipan þingsæta í Suðvesturkjördæmi samvæmt könnuninni en hún byggir á svörum  í könnunum fréttastofu undanfarnar tvær vikur sem og könnun sem gerð var á mánudag og þriðjudag.

Framsóknarflokkurinn tapar tveimur þingmönnum í kjördæminu með 6,7 prósenta fylgi og kæmist Eygló Harðardóttir ein á þing en Willum Þór Þórsson alþingismaður næði ekki kjöri.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig örlitlu fylgi frá síðustu kosningum þótt hann sé enn langt frá rúmlega 42 prósenta fylgi kosninganna 2007. Mælist nú með 31,6 prósent og héldi fimm þingmönnum, Bjarna Benediktssyni, Bryndísi Haraldsdóttur, Jóni Gunnarssyni, Óla Birni Kárasyni og Vilhjálmi Bjarnasyni.

Samfylkingin tapar öðrum sinna tveggja þingmanna í kjördæminu en hún mælist með 8 prósenta fylgi og því nær Árni Páll Árnason kjöri. Vinstri græn eru hins vegar að bæta við sig fylgi, fengju 11,6 prósent og einn mann kjörinn. En mjög mjótt er á munum annars manns Vinstri grænna, Ólafi Þór Gunnarssyni og Vilhjálmi Bjarnasyni fimmta manns Sjálfstæðisflokksins samkvæmt könnuninni.

Björt framtíð heldur sínum manni með 7 prósenta fylgi sem dugar fyrir þingsæti Óttars Proppé formanns flokksins. Píratar fengju aftur á móti þrjá menn kjörna með 20,1 prósent atkvæða í Suðvesturkjördæmi. Jón Þór Ólafsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Andri Þór Sturluson kæmust því öll á þing samkvæmt þessum niðurstöðum.

Viðreisn með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrrverandi menntamálaráðherra og varaformanni Sjálfstæðisflokksins í oddvitasæti, mælist með 8 prósent eins og Samfylkingin. Þar með kæmist Þorgerður Katrín á þing á nýjan leik.


Tengdar fréttir

Píratar ásælast ekki forsætisráðuneytið

Píratar myndu bæta við sig langflestum þingmönnum í komandi alþingiskosningum miðað við nýjustu könnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Þingflokkur VG myndi næstum tvöfaldast. Píratar hyggjast ræða áfram við forystumenn annarra




Fleiri fréttir

Sjá meira


×