Innlent

Sjálfstæðisflokkurinn toppar á réttum tíma

Jakob Bjarnar skrifar
Sé miðað við þróun sem verið hefur í könnunum er Bjarni Benediktsson og hans fólk að reka farsæla kosningabaráttu.
Sé miðað við þróun sem verið hefur í könnunum er Bjarni Benediktsson og hans fólk að reka farsæla kosningabaráttu. visir/ernir
Ný skoðanakönnun Gallup, um fylgi flokkanna var að birtast en þar mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur. Hann mælist með 27 prósenta fylgi en Píratar með rétt tæp 18. Þetta kemur fram á ruv.is.



Sé litið til fylgis annarra flokka þá eru Vinstri græn með 16,5 prósent og Framsóknarflokkurinn er fjórði stærsti flokkurinn en 9,3 prósent duga í það sæti sem segir að um verulega dreifingu atkvæða er að ræða. Viðreisn fær tæp 9 prósent, Samfylkingin 7,4 og Björt framtíð fær í könnuninni 6,8 prósent. Flokkur fólksins daðrar svo við fimm prósenta markið, sem er það sem þarf til að ná inn þingmanni og mælist með 3,4 prósent. Aðrir eru með minna.

„Könnunin var gerð dagana 24. til 28. október og er net-og símakönnun. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Gallup, en úrtakið í símakönnuninni var tilviljunarúrtak úr Þjóðskrá. Heildarúrtaksstærð var 3.508 manns 18 ára eða eldri. Þátttökuhlutfall var 55,0% eða 1.728,“ segir á ruv.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×