Glamour

Sjálfsmyndir frægra á forsíðu Interview

Ritstjórn skrifar
Victoria Beckham
Victoria Beckham
Tímaritið Interview er með hvorki meira né minna en átta forsíður á september blaði sínu. Það sem er enn óvenjulegra við þessar átta forsíður er að á þeim eru sjálfsmyndir (e.selfies) af heimsþekktum einstaklingum.

Forsíðurnar prýða þau Victoria Beckham, með David, Harper og Brooklyn Beckham í baksýn, Jennifer Lopez, Selena Gomez, Miley Cyrus, Kim Kardashian, Zayn Malik fyrrum meðlimur One Direction, Madonna og ljósmyndarinn Mert Alas.

Hafa myndirnar vakið mikla athygli, en þó sérstaklega myndirnar af Miley Cyrus og Mert Alas, en á forsíðunum þeirra eru þau hálfnakin að tala saman gegnum face time.

Þema blaðsins eru sjálfsmyndir og eru forsíðurnar meðal annars merktar með #ME. 

Miley Cyrus
Jennifer Lopez
Zayn Malik
Madonna
Mert Alas
Kim Kardashian
Selena Gomez
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.






×