Viðskipti erlent

Sjálfkeyrandi leigubílar í Boston

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Áætlað er að tilraunin hefjist fyrir árslok.
Áætlað er að tilraunin hefjist fyrir árslok. vísir/epa
Sprotafyrirtækið nuTonomy hefur komist að samkomulagi við borgaryfirvöld í Boston í Bandaríkjunum um að fá að prufukeyra sjálfkeyrandi leigubílaflota sinn í borginni.

Fyrirtækið áætlar að fyrir lok árs muni prufur hefjast. Borgarar Boston munu hins vegar ekki geta sest upp í sjálfkeyrandi leigubíl nuTonomy, en bílarnir munu eingöngu keyra um göturnar og safna gögnum.

Nú þegar hefur nuTonomy staðið í prufukeyrslu í Singapúr en Uber, sem einnig ætlar að bjóða upp á sjálfkeyrandi leigubíla, prófar sína leigubíla í bandarísku borginni Pitts­burgh. Sá munur er hins vegar á prufum nuTonomy og Uber að Uber tekur upp farþega.

„Boston er tilbúin til þess að verða leiðandi afl í þróuninni í átt að sjálfkeyrandi bílum. Ég mun beita mér fyrir því að sjálfkeyrandi bílar muni gagnast borgarbúum. Þetta er spennandi skref fram á við,“ sagði Martin J. Walsh borgarstjóri í gær.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×