Lífið

Sjálfboðastarf með dýrum í Afríku

Frosti Logason skrifar
Fjölmargir Íslendingar hafa á undanförnum árum ferðast til Afríku til þess að starfa sem sjálfboðaliðar í hinum ýmsu verkefnum. Sérstaklega eru vinsælar ferðir til Suður-Afríku þar sem ungu fólki gefst kostur á að starfa náið með framandi skepnum í ævintýralegu umhverfi.

Glen Afric dýrathvarfið sem staðsett er rétt fyrir utan Jóhannesarborg býður einmitt upp á frábæra upplifun fyrir fólk sem þráir að kynnast dýralífi Afríku. Þar eru fílar, ljón, gíraffar, tígrisdýr og flóðhestar svo eitthvað sé nefnt, öll í mikllu návígi við þá sem þangað koma.

Við heimsóttum Glen Afric í nokkra daga í síðustu viku og urðum ótrúlega hrifnir af því sem þarna fer fram. Eigandi athvarfsins hefur mikla reynslu úr þessum bransa en hann hefur verið í því að finna skepnum ný heimili í næstum hálfa öld.

Til Glen Afric koma skepnur sem hafa ýmist þurft aðstoð úti í hinni viltu náttúru Afríku eða úr dýragörðum sem ekki hafa getað haft þau lengur og svo framvegis. Þetta er magnaður staður sem við hefðum alveg viljað eyða meiri tíma á en ferðalagið verður víst að halda áfram. Kíkið endilega á myndbandið hér að ofan. 



Vinirnir Frosti Logason og Sigurður Þorsteinsson fara í haust í sex vikna ferðalag um Asíu og Afríku. Þeir ætla að leyfa lesendum Vísis að fylgjast með ferðalaginu í máli, myndum og myndböndum. Félagarnir fara meðal annars í safarí í Suður-Afríku, fara á brimbrettanámskeið á Balí og læra að kafa í Taílandi. Verkefnið gengur undir heitinu AsíAfríka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×