Fótbolti

Sjálfa íslensku stelpnanna fyrir leik vekur athygli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir mætir til leiks í Rotterdam í kvöld.
Glódís Perla Viggósdóttir mætir til leiks í Rotterdam í kvöld. Vísir/Getty
Íslensku stelpurnar eru að spila þessa stundina við Austurríki en þetta er síðasti leikur íslenska liðsins á Evrópumótinu í Hollandi.

Íslenska liðið er úr leik eftir töp í tveimur fyrstu leikjum sínum og óhagstæð úrslit úr öðrum leikjum.

Stelpurnar voru gríðarlega vonsviknar eftir tapið á móti Sviss á laugardaginn en íslenski hópurinn hefur unnið vel í því að rífa sig upp fyrir lokaleikinn í kvöld. Íslenska liðið leggur áherslu á að njóta síðustu daga sína í Hollandi.

Stelpurnar okkar ætla að kveðja EM með sigri og þær voru brosmildar og kátar fyrir leikinn á móti Austurríki.

Íslensku stelpurnar skelltu í eina sjálfu inn á grasinu fyrir leikinn og myndband af brosmildum okkar konum að stilla sér upp fyrir mynd hjá markverðinum Guðbjörgu Gunnarsdóttur vakti það mikla athygli að myndbandið fór inn á Twitter-síðuna We Play Strong.

Það má sjá þessa Twiter-færslu hér fyrir neðan.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×