Lífið

Sjáið óvenjulegan brúðarkjól Angelinu Jolie

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrstu myndirnar úr brúðkaupi leikarahjónanna Brad Pitt og Angelinu Jolie eru í breska tímaritinu Hello!

Á forsíðunni sést brúðarkjóll Angelinu vel en einnig mynd af innilegum kossi hjónanna.

Brúðarkjóll Angelinu er frekar óvenjulegur en með fallega sögu og er slörið skreytt með litríkum teikningum sem börnin hennar sex teiknuðu.

„Það var mikilvægt fyrir okkur að dagurinn væri afslappaður og fullur af hlátri. Þetta var sérstakur dagur sem við deildum með börnunum okkar og mjög hamingjusamur tími hjá fjölskyldunni,“ segir Angelina og Brad í viðtali við Hello!

Angelina og Brad giftu sig í Chateau Miraval í Frakklandi og tóku börnin sex, Maddox, Pax, Zahara, Shiloh, Vivienne og Knox, virkan þátt í athöfninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×