Enski boltinn

Sjáið öll mörkin hans Gylfa á tímabilinu | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sitt sjöunda mark fyrir Swansea City á leiktíðinni í gærkvöldi og hann gerði það á gamla heimavelli sínum White Hart Lane.

Gylfi Þór hefur lagt það í vana sinn að skora á móti stóru félögunum og það breyttist ekkert í gærkvöldi þótt að lið hans hafi farið stigalaust heim til Wales en Tottenham vann 3-2 sigur á Swansea í leiknum.

Gylfi hefur meðal annars skorað á móti Manchester United, Liverpool, Arsenal og Tottenham í vetur en næsti deildarleikur liðsins er á móti Liverpool á heimavelli.

Gylfi hefur alls skoraði fimm mörk í ensku úrvalsdeildinni, eitt í enska bikarnum og eitt í enska deildabikarnum. Samtals gera þetta sjö mörk í 26 leikjum í öllum keppnum en íslenski landsliðsmaðurinn hefur einnig gefið átta stoðsendingar.

Það er gaman að skoða öll mörk Gylfa á leiktíðinni og hér fyrir neðan má sjá myndband með þeim öllum, allt frá því að hann skoraði strax í fyrstu umferðinni á móti Manchester United á Old Trafford.

Öll mörkin hans Gylfa í vetur Markið á móti Tottenham Markið á móti Blackburn Markið á móti Liverpool Markið á móti Aston Villa Markið á móti Arsenal Markið á móti Everton Markið á móti Manchester United

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×