Lífið

Sjáið myndbandið: Hundrað ára magadansmær

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Catherine Furst, sem gengur undir nafninu Kay á meðal vina, varð hundrað ára síðustu helgi. Af því tilefni brá hún sér í magadansbúning sem hún klæddist fyrst þegar hún var þrítug.

„Mér líður ekki eins og ég sé hundrað ára," segir Kay í viðtali við WPBF. Hún segist vera svo langlíf því hún hafi alltaf verið góð við annað fólk. Þá segir hún magadansinn líka spila stórt hlutverk.

„Ég byrjaði þegar ég var þrítug held ég. Þá var ég með línur," segir Kay sem lærði hárgreiðslu og byrjaði að dansa á hárgreiðslustofu sem hún vann á.

„Fólk kom á stofuna og fór í hárgreiðslu og bauð mér síðan að dansa á fallegum heimilum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×