Lífið

Sjáið eldgamlar myndir af Renée Zellweger

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Útlit leikkonunnar Renée Zellweger hefur verið aðalumræðuefnið í þessari viku. Þótti mörgum andlit hennar hafa tekið miklum breytingum þegar hún mætti á Elle Women in Hollywood-verðlaunin á mánudagskvöldið og töldu margir að hún hefði látið lappa upp á það.

Renée svaraði þessum vangaveltum fullum hálsi í yfirlýsingu sem hún sendi tímaritinu People. 

„Ég er ánægð að fólki finnist ég líta öðruvísi út! Ég er að lifa öðruvísi, hamingjusamara og meira fullnægjandi lífi og ég er himinlifandi að það sjáist,“ sagði hún meðal annars.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar gamlar myndir af Renée síðan hún var ung stúlka og kona í skóla. Renée hefur ekki mikið breyst, annað en að hún hefur elst eins og við flest gerum, og er hún stórglæsileg kona - á hvaða aldri sem er.


Tengdar fréttir

Renée svarar fyrir sig

"Kannski lít ég öðruvísi út. Hver gerir það ekki þegar þeir eldast?! En ég er öðruvísi. Ég er hamingjusöm.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×