Handbolti

Sjáið dúkinn fara á hallargólfið fyrir bikarúrslitahelgina | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úr landsleik á dúknum fræga.
Úr landsleik á dúknum fræga. Vísir/Vilhelm
Bikarúrslitahelgi handboltans er framundan þar sem allir flokkar keppa um bikarmeistaratitilinn, allt frá 4. flokki karla og kvenna upp í meistaraflokkana. Fyrsti leikurinn er í kvöld en sá síðasti á sunnudagskvöldið.

Leikirnir fara að sjálfsögðu fram á dúknum fræga sem er nú kominn á gólfið í Laugardalshöllinni enda stutt í fyrsta leik. Bikarúrslitahelgin hefst klukkan 17.15 í dag með undanúrslitaleik Vals og Hauka í Coca Cola bikar kvenna. Seinna í kvöld mætast síðan ÍBV og Grótta.

Starfsmenn Handknattleikssambandsins hafa nú sett inn skemmtilegt myndband af því þegar dúkurinn var settur á gólfið í Laugardalshöllinni og það er hægt að sjá myndbandið hér fyrir neðan.

"Dúkurinn er kominn á gólfið og allt að verða klárt fyrir hátíðarhöld næstu daga!," segir í fréttinni með myndbandinu inn á fésbókarsíðu HSÍ.

Þetta er sami dúkur og Danir urðu Evrópumeistarar á í Serbíu árið 2012 en HSÍ keypti hann á sínum tíma þar sem að allir alþjóðlegir landsleikir í Höllinni þurfa að vera spilaðir á svona dúk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×