Fótbolti

Sjáið Bayern, Barcelona og Chelsea komast yfir í sínum leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arjen Robben fagnar hér marki sínu.
Arjen Robben fagnar hér marki sínu. Vísir/Getty
Þýska liðið Bayern München, spænska liðið Barcelona og enska liðið Chelsea komust öll yfir í upphafi leiks í leikjum sínum í Meistaradeildinni í kvöld og nú er hægt að sjá öll mörkin hér á Vísi.

Brasilíumaðurinn Neymar skoraði fyrsta mark Barcelona á 7. mínútu eftir stoðsendingu frá Lionel Messi, Hollendingurinn Arjen Robben skoraði fyrsta mark Bayern München á áttundu mínútu og  Loïc Rémy skoraði fyrsta mark Chelsea á 13. mínútu en þurfti skömmu síðar að fara meiddur af velli.

Það er hægt að sjá öll þessi mörk hér fyrir neðan.

1-0 fyrir Chelsea. 1-0 fyrir Barcelona 1-0 fyrir Bayern.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×