Körfubolti

Sjáðu viðtalið fræga við Jóhann Þór og umræðuna um „real talk“ kvöldsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhann var vægast sagt ekki sáttur.
Jóhann var vægast sagt ekki sáttur.
„Ég hef eiginlega ekki hugmynd hvað gerist hjá liðinu eftir fína byrjun,“ segir Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga, eftir tapið fyrir Haukum í gærkvöldi.

Grindvíkingar töpuðu fyrir Haukum, 89-69, í Dominos-deild karla í kvöld. Liðið náði sér engan veginn á strik.

„Við erum bara slakir í kvöld, alveg saman hvar litið er niður. Það var ekki að hjálpa okkur að við hittum illa, við hefðum líklega ekki hitt hafið á bryggjunni í kvöld. Þetta pirrar mig töluvert og ég hef bara miklar áhyggjur af þessu.“

Stigaskorið gekk ekkert hjá Grindvíkingum í gær.

„Við settumst niður eftir áramót og ræddum málin. Við ætluðum að taka okkur leik upp á næsta stig en við erum heldur betur ekki að því. Ég veit ekki hvort við höndlum bara ekki þessa umræðu. Lykilmenn í liðinu voru skelfilegir í kvöld. Ólafur [Ólafsson] er með stórar áætlanir að fara hingað og þangað en hann getur bara ekki neitt í kvöld. Dagur var slakur og Ómar líka, bara svona ef ég á að taka Ívar [Ásgrímsson, þjálfara Hauka] á þetta og gangrýni leikmenn bara beint út,“ segir Jóhann og kallar eftir því að menn axli ábyrgð á sínum leik.

„Þegar kemur að því að framkvæma hlutina í leik þá líta menn bara hræðilega út.“

Viðtalið var til umræðu hjá sérfræðingunum í Körfuboltakvöldinu á Stöð 2 Sport í gær og höfðu þeir þetta um málið að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×