Enski boltinn

Sjáðu trylltan fögnuð Mitrovic með stuðningsmanni sem hljóp inn á

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aleksandar Mitrovic var hetja Newcastle í dag en hann skoraði jöfnunarmarkið, 1-1, á móti Sunderland í nágrannaslag þessara miklu erkifjenda á St. James Park í dag.

Það verður ekki tekið af Serbanum að hann leggur hjarta sitt og sál í boltann en fögnuður hans var eins trylltur og innilegur og hann gerist.

Mitrovic reif sig úr treyjunni og fagnaði svo með stuðningsmanni Newcastle sem hljóp inn á völlinn. Serbinn reyndi að stökkva í fang stuðningsmannsins en hann rann á afturendann og því stökk Serbinn yfir hann.

Þeir félagarnir náðu þó einu hjartnæmu bangsaknúsi áður en stuðningsmaðurinn var rifinn í burtu.

Þetta frábæra fagn má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×