Enski boltinn

Sjáðu þrumuskot Jóa Berg og þrumuskalla Kára

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kári Árnason og Jóhann Berg Guðmundsson voru báðir á skotskónum fyrir félög sín í ensku B-deildinni um helgina. Mörkin voru bæði af dýrari gerðinni.

Kári skoraði sigurmark Rotherham í 2-1 sigri á Millwall um helgina. Markið skoraði Kári með þrumuskalla þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Markið var afar mikilvægt því Rotherham er í bullandi fallbaráttu.

Jóhann Berg skoraði sitt þriðja mark í mánuðinum í gær þegar hann skoraði úr aukaspyrnu af 20 metra færi í 3-0 sigri á Huddersfield. Charlton er í tólfta sæti deildarinnar og er búið að vinna þrjá af síðustu fimm leikjum.

Bæði mörkin má sjá hér að ofan, en þau voru sýnd í kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×