Íslenski boltinn

Sjáðu þrennuna hans Ásgeirs er KA valtaði yfir Fylki

Ásgeir Sigurgeirsson, leikmaður KA, komst í gær upp í þriðja sætið yfir markahæstu leikmenn Pepsi-deildar karla í fótbolta þegar að hann skoraði þrennu fyrir Akureyrarliðið í 5-1 bursti gegn Fylki fyrir norðan.

KA-menn unnu sinn þriðja leik í röð á sama tíma og Fylkir tapaði fimmta leiknum í röð en Fylkir er aðeins búið að vinna einn af síðustu níu leikjum sínum í deildinni og safna fjórum stigum af 27 mögulegum.

Ásgeir skoraði fyrsta, þriðja og fimmta mark KA sem komst í 5-0 áður en Valdimar Þór Ingimundarson klóraði í bakkann fyrir Fylki sem er búið að fá á sig 17 mörk í síðustu fimm leikjum eða ríflega þrjú mörk að meðaltali á sig í leik.

Hér að ofan má sjá öll mörkin úr leiknum en farið verður ítarlega yfir hann í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í kvöld á eftir beinni útsendingu frá leik Grindavíkur og Keflavíkur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×