Sport

Sjáðu þetta ótrúlega skot hjá Federer

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roger Federer fór á kostum þegar hann bar sigurorð af Þjóðverjanum Philipp Kohlschreiber á sterku móti í Halle í Þýskalandi í gær.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi var Svisslendingurinn í essinu sínu í leiknum. Hann átti ótrúlegt skot þegar hann svaraði Kohlschreiber með skoti aftur fyrir bakið en hann vann svo stigið.

Það var þó ekki allt og sumt. Eftir að hafa runnið til í uppgjöf þá náði hann engu að síður að svara Kohlschreiber, liggjandi í grasinu, en tapaði að lokum stiginu.

Federer vann þó viðureignina sem var jöfn og spennandi en Federer á titil að verja á mótinu.

Skotin tvö má sjá í spilurunum hér fyrir ofan og neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×