Enski boltinn

Sjáðu það besta frá Suárez á síðustu leiktíð | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Fyrr í dag staðfesti Liverpool að félagið hefði samþykkt tilboð Barcelona í Luis Suárez. Suárez fer í læknisskoðun í næstu viku áður en hann undirritar fimm ára samning.

Talið er að Barcelona greiði 75 milljónir punda fyrir leikmanninn sem skoraði 31 mark í 33 leikjum með Liverpool á tímabilinu.

Suárez var besti leikmaður Liverpool á síðasta tímabili og í myndbandinu hér fyrir ofan má sjá nokkra af hápunktum úrúgvæska framherjans á leiktíðinni.


Tengdar fréttir

Tilboð Barcelona í Suárez samþykkt

Liverpool staðfesti rétt í þessu að félagið hefði samþykkt tilboð Barcelona í Luis Suárez. Suárez sem er 27 ára hefur samþykkt undir fimm ára samning hjá Barcelona.

Verð stuðningsmaður Liverpool að eilífu

Luis Suárez þakkaði stuðningsmönnum Liverpool fyrir tíma sinn hjá félaginu á heimasíðu Liverpool í dag eftir að félagið samþykkti tilboð Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×