Enski boltinn

Sjáðu stuðningsmenn Leicester fagna Englandsmeistaratitlinum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Leicester varð Englandsmeistari í gær eins og flestir vita en bæði leikmenn og stuðningsmenn liðsins þurftu að bíða spenntir eftir úrslitum úr leik Chelsea og Tottenham.

Tottenham þurfti að vinna leikinn og var 2-0 yfir í hálfleik en Chelsea kom til baka í seinni hálfleik með mörkum frá Gary Cahill og Eden Hazard og tryggði sér jafntefli.

Sjá einnig:Gary Lineker verður á nærbuxunum í haust

Það var nóg fyrir Leicester og varð eðlilega allt vitlaust þar í borg þar sem liðið varð meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Stuðningsmennirnir fögnuðu á barnum og á götum úti en leikmenn liðsins voru heima hjá Jamie Vardy og trylltust þeir líka úr gleði eins og má sjá í myndbandinu hér að neðan.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá bestu viðbrögð stuðningsmanna Leicester við marki Eden Hazard sem á endanum tryggði þeirra mönnum Englandsmeistaratitilinn.

Hér að neðan má líka sjá nokkrar myndir frá fagnaðarlátunum í gærkvöldi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×