Sport

Sjáðu síðasta blaðamannafund Conors og Mayweather

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Box gegn MMA. Svona pósuðu kapparnir í kvöld.
Box gegn MMA. Svona pósuðu kapparnir í kvöld. vísir/getty
Conor McGregor og Floyd Mayweather voru merkilega kurteisir í kvöld á síðasta blaðamannafundi þeirra fyrir stóra bardagann. Báðir mættu í jakkafötum með sólgleraugu.

Conor mætti rúmum klukkutíma of seint á fundinn en Mayweather lét það ekkert trufla sig. Segist vera ýmsu vanur.

Það var miklu meiri ró yfir báðum köppum en á fyrri fundum. Hugurinn kominn í bardagann og engin ástæða til þess að vera með of mikil læti.

Conor sagðist vera himinlifandi með æfingabúðirnar og sagðist vera klár í að keyra tólf lotur á fullu gasi.

„Ég mun keyra í hann af fullum krafti og brjóta hann. Að fara í minni hanska voru mikil mistök af hans hálfu. Ég get ekki séð að hann lifi af tvær lotur eftir þessa breytingu,“ sagði Írinn borubrattur.

„Ég mun útboxa hann í hans íþrótt. Ég mun rústa honum en hluti af mér verður sorgmæddur fyrir þeirra hönd því þeir hefðu aldrei átt að ná í mig.“

Hinn reynslumikli Mayweather var ótrúlega auðmjúkur. Þakkaði öðrum hvorum manni í heiminum og hrósaði meira að segja Conor í hástert.

„Það má enginn efast um að ég tek þessu mjög alvarlega. Conor er frábær bardagamaður og mikill toppmaður. Hann er gríðarlegur keppnismaður og þetta verður alvöru bardagi,“ sagði Mayweather.

„Ég er búinn í að vera í þessu í 21 ár og hef fengið öll högg sem til eru. Samt stend ég hér enn ósigraður. Þetta verður ekki auðvelt Conor. Það hafa menn komið með stórar sprengjur til mín en ég er með graníthöku. Mundu líka að ef þú getur kýlt verður þú að geta líka tekið á móti höggum.“

WBC-sambandið tilkynnti líka á fundinum í kvöld að sigurvegarinn fengi svokallað peningabelti sem er vel við hæfi. Alltaf eitthvað nýtt.

Sjá má fundinn hér að neðan.

Bardagi Conors og Mayweather fer fram á laugardag og bardaginn verður í beinni á Stöð 2 Sport. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×