Bíó og sjónvarp

Sjáðu opnunaratriði Chris Rock á Óskarnum

Atli Ísleifsson skrifar
Chris Rock var kynnir 88. Óskarsverðlaunahátíðarinnar.
Chris Rock var kynnir 88. Óskarsverðlaunahátíðarinnar. Vísir/AFP
Bandaríski grínarinn Chris Rock var kynnir Óskarsverðlaunahátíðarinnar í nótt og opnaði hátíðina að sjálfsögðu með því að taka á umræðunni um að enginn svartur leikari eða leikari af öðrum minnihlutahópi hafi verið tilnefndur til verðlauna þetta árið.

Hann spurði meðal annars af hverju þetta hafi orðið að þessu stórmáli í ár og benti á að hið sama hafi gerst í 71 skipti í 88 ára sögu verðlaunanna.

„Maður verður að gera sér grein fyrir hvað gerðist á sjötta og sjöunda áratugnum. Eitthvert árið var Sidney Poitier ekki í mynd sem kom út. Svart fólk mótmælti ekki, þar sem við þurftum að mótmæla alvöru málum. Við vorum of upptekin við að verða nauðgað og verða tekin af lífi til að hafa áhyggjur af því hver vann verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku. Þegar þú hangir í snöru í tré, er erfitt að hafa áhyggjur af því hver hlýtur verðlaun fyrir bestu heimildarmynd í stuttri lengd.“

Sjá má opnunaratriðið að neðan.


Tengdar fréttir

Loksins fékk Leo styttuna

Leonardo DiCaprio fékk sín fyrstu Óskarsverðlaun fyrir hlutverk sitt í The Revenant






Fleiri fréttir

Sjá meira


×