Enski boltinn

Sjáðu öll tilþrif helgarinnar úr enska boltanum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir býður lesendum sínum upp á að sjá allt það helsta sem átti sér stað í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Aðeins fjórir leikir fóru fram í deildinni um helgina þar sem bikarkeppnin hafði forgang á þau lið sem eru enn í henni.

Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp enn eina markið í 2-1 tapi fyrir Swansea í laugardag og Liverpool vann mikilvægan endurkomusigur á Burnley í gær.

Hér fyrir neðan má sjá myndbönd þar sem farið yfir öll atvik helgarinnar í ítarlegum myndböndum. Það má finna samantektir úr hverjum einasta leik auk þess sem hver dagur er gerður upp í einu myndbandi.

Að lokinni hverri umferð er hún svo gerð upp með því að skoða bestu mörkin, bestu markvörslurnar og skondnustu atvikin.

Samantektir úr leikjum birtast ávallt í lok hvers leikdags og eru í birtingu í eina viku. Þau má öllu jafna nálgast á sjónvarpsvef Vísis með því að smella á „Íþróttir“ og „Enski boltinn“.

Umferðin gerð upp: Samantektir helgarinnar: Stakir leikir:

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×