Fótbolti

Sjáðu öll mörk gærkvöldsins í Meistaradeildinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Cristiano Ronaldo tókst loks að skora á Anfield í gærkvöldi þegar hann kom Real Madrid í 1-0 á móti Liverpool. Evrópumeistararnir fóru með sigur af hólmi, 3-0, og eru á toppi síns riðils með fullt hús stiga.

Arsenal vann magnaðan endurkomu sigur á móti Anderlecht á útivelli þar sem Lukas Podolski skoraði sigurmarkið og þá gerði Olympiacos sér lítið fyrir og vann Ítalíumeistara Juventus, 1-0.

Arnar Björnsson stýrði Meistaramörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöldi sem eru á dagskrá eftir hvern leikdag í Meistaradeildinni, en með honum voru HjörvarHafliðason og Gunnleifur Gunnleifsson.

Allann þáttinn má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×