Handbolti

Sjáðu Óla Stef hita upp fyrir lokaleikinn | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur tók skóna af hillunni fyrir leikina gegn Zagreb.
Ólafur tók skóna af hillunni fyrir leikina gegn Zagreb. vísir/daníel
Ólafur Stefánsson leikur í dag sinn síðasta leik á ferlinum þegar KIF Kolding Köbenhavn tekur á móti Zagreb í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Kolding á erfitt verkefni fyrir höndum en dönsku meistararnir, sem Aron Kristjánsson stýrir, þurfa að vinna upp fimm marka forskot Zagreb frá því í fyrri leiknum.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, er í Bröndby-höllinni og tók meðfylgjandi myndir af Ólafi í upphituninni fyrir kveðjuleikinn.

Um 15 mínútur eru liðnar af leiknum. Kolding leiðir með einu marki, 6-5.

vísir/daníel
vísir/daníel
vísir/daníel

Tengdar fréttir

Tap í endurkomu Óla Stef

KIF Kolding tapaði með fimm mörkum, 22-17, fyrir RK Zagreb í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Ólafur Stefánsson sneri aftur á handboltavöllinn og skoraði eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×