Lífið

Sjáðu Of Monsters and Men koma fram í nýjasta þætti GOT

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stóðu sig vel í Game of Thrones.
Stóðu sig vel í Game of Thrones. vísir
Íslenska ofurhljómsveitin Of Monsters and Men fór ákostum í nýjasta þætti Game of Thrones sem var frumsýndur á Stöð 2 í nótt.

Um var að ræða fimmta þáttinn í sjöttu seríu Game of Thrones en þættirnir eru þeir vinsælustu í heiminum í dag.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem íslenskt band kemur fram í þáttunum en hljómsveitin Sigurrós kom einnig fram í fjórðu seríu.

Sveitin greindi sjálf frá því að hún yrði í þættinum í gær og deildi hún mynd þar sem sjá má meðlimi OMAM með leikkonunni Maisie Williams sem fer með hlutverk Arya í þáttunum. Hér að neðan má sjá atriðið þegar meðlimir Of Monsters and Men koma fyrir í þættinum frá því í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×