Tónlist

Sjáðu nýtt tónlistarmyndband Samaris

Baldvin Þormóðsson skrifar
Í myndbandinu fara Ólafur Darri og María Birta með aðalhlutverkin.
Í myndbandinu fara Ólafur Darri og María Birta með aðalhlutverkin. mynd/skjáskot
Hljómsveitin Samaris frumsýndi í dag nýtt tónlistarmyndband á vefsíðunni Clash Music en myndbandið er við lagið Brennur Stjarna og fara María Birta Bjarnadóttir og Ólafur Darri Ólafsson með aðalhlutverk í myndbandinu.

„Þau eru bara frábær, alveg æðisleg,“ segir leikstjóri myndbandsins, Marteinn Þórsson um hljómsveitina Samaris í viðtali við Fréttablaðið sem birtist seinastliðinn laugardag.

„Þetta er svipuð pæling og í XL, bara aðeins póetískari. Maður er líka að reyna að fanga sama tón og andrúmsloft og er í tónlistinni,“ segir hann en myndbandið má sjá hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×