Bílar

Sjáðu Nissan GT-R fljúga útaf í Pikes Peak

Finnur Thorlacius skrifar
Í klifurkeppninni í Pikes Peak í Colorado verða ávallt einhverjir útafakstrar, misbanvænir þó, en klifið er upp snarbratt fjall og víða þurfa menn ekki að kemba hærurnar ef þeir fara útaf.

Ökumaður þessa aflmikla Nissan GT-R bíls var þó heppinn að þetta gerðist á þessum stað brautarinnar. Ökumaður bílsins var Randy Pobst sem er atvinnukappakstursmaður og þykir afar hæfur bílstjóri.

Hann réð þó ekki við þessa beygju enda á dágóðum hraða þegar hann kemur inní hana. Pobst sagðist hafa mislesið beygjuna og að hún hafi verið sleipari en hann átti von á. Pobst varð ekki fyrir neinum meiðslum við þennan útafakstur, þótt furðuslegt megi virðast. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×