Lífið

Sjáðu myndir úr brúðkaupi Begga og Pacas

Ellý Ármanns skrifar
myndir/Linda Björk
Guðbergur Garðarsson, kallaður Beggi, og InácioPacasda Silva Filho, giftu sig 15. ágúst síðastliðinn. Við fengum leyfi til að birta þessar skemmtilegu myndir úr brúðkaupinu þeirra.

Eins og sjá má voru þeir áberandi flottir klæddir í skotapils á þessum mikilvæga degi í lífi þeirra.



Gestir fengu rauðar regnhlífar sem settu skemmtilegan svip á athöfnina.

Eftirfarandi skilaboð skrifuðu Beggi og Pacas á Facebooksíðuna sína með myndinni hér að ofan:  

Við Pacas erum hálf klökkir að lesa yfir allar þessar dásamlegu kveðjur til okkar og þökkum kærlega fyrir allar heillaóskirnar. Við áttum stórkostlegan dag þann 15.ágúst síðastliðinn þegar hann Hjörtur Magni gaf okkur saman.

Við eyddum deginum með fjölskyldu og vinum og viljum við þakka öllum þeim sáu sér fært um að koma og gera með okkur daginn ógleymanlegan. Ást og friður elsku vinir.


Gleðin skín úr augum hjónanna.

Pacas, Linda Björk Halldórsdóttir og Beggi.

Þeir voru æðislegir í pilsunum.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða allar myndirnar.

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur Fríkirkjunnar í Reykjavík, gaf þá saman.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×