Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin úr Víkinni | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
ÍBV vann Víking, 2-1, í Víkinni í Pepsi-deild karla í fótbolta í kvöld, en með sigrinum lyftu Eyjamenn sér úr fallsæti.

Ian Jeffs og Arnar Bragi Bergsson skoruðu mörk Eyjamanna, en Arnar Bragi skoraði skondið mark í byrjun seinni hálfleiks.

Deilur eru um hver skoraði mark Víkings, en það virðist fara af MattGarner og svo undir Abel og í netið. En dómari leiksins skráði markið á Pape Mamadou Faye.

Dæmi nú hver fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×