Enski boltinn

Sjáðu mörkin sem voru skoruð á Anfield í kvöld

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Daniel Sturridge skaut Liverpool áfram í átta liða úrslit enska deildabikarsins í kvöld en hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 heimasigri á Tottenham í 16 liða úrsiltunum.

Sturridge skoraði fyrra markið á níundu mínútu þegar hann var á undan Michel Vorm í boltann í teignum og það síðara í seinni hálfleik þegar hann slapp einn í gegn og tók færið sitt vel.

Vincent Janssen minnkaði muninn fyrir Tottenham úr vítaspyrnu sem Eric Lamela fiskaði á Lucas en vítaspyrnudómurinn var ansi ódýr. Hvorki Janssen né Sturridge eru búnir að skora í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Hér að ofan má sjá mörkin þrjú sem voru skoruð á Anfield í kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×