Enski boltinn

Sjáðu mörkin sem kláruðu Bournemouth

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lukaku kláraði færi sitt vel
Lukaku kláraði færi sitt vel Vísir/Getty
Einn leikur fór fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi þegar Manchester United sótti þrjú stig á Vitality völlinn í Bournemouth.

Chris Smalling kom gestunum frá Manchester yfir eftir um hálftíma leik með marki af stuttu færi eftir frábæran undirsbúning Ander Herrera og Jesse Lingard upp úr hornspyrnu.

Romelu Lukaku bætti við öðru marki United í seinni hálfleik, en hann kom inn sem varamaður aðeins nokkrum mínútum áður. Markið kom eftir vel útfærða skyndisókn sem endaði með hnitmiðaðri sendingu Paul Pogba inn á Lukaku sem kláraði yfir Asmir Begovic í marki Bournemouth.

Mörkin, ásamt öllu því helsta sem gerðist í leiknum, má sjá í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×