Enski boltinn

Sjáðu mörkin sem gengu frá Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Leicester fagna eftir leik í gær.
Leikmenn Leicester fagna eftir leik í gær. Vísir/Getty
Vísir býður lesendum sínum upp á að sjá allt það helsta sem átti sér stað í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá myndbönd þar sem farið yfir öll atvik helgarinnar í ítarlegum myndböndum. Það má finna samantektir úr hverjum einasta leik auk þess sem hver dagur er gerður upp í einu myndbandi.

Umferðinni lauk í gærkvöldi með 3-1 sigri Englandsmeistara Leicester á Liverpool en þetta var fyrsti leikur fyrrnefnda liðsins eftir að Claudio Ranieri knattspyrnustjóra var sagt upp störfum í síðustu viku.

Með sigrinum komst Leicester úr fallsæti en Liverpool, sem hefur unnið aðeins einn af síðustu fimm deildarleikjum sínum, er í fimmta sætinu með 49 stig, fjórtán stigum á eftir toppliði Chelsea.



Að lokinni hverri umferð er hún svo gerð upp með því að skoða bestu mörkin, bestu markvörslurnar og besta leikmanninn.

Samantektir úr leikjum birtast ávallt í lok hvers leikdags og eru í birtingu í eina viku. Þau má öllu jafna nálgast á sjónvarpsvef Vísis með því að smella á „Íþróttir“ og „Enski boltinn“.

Umferðin gerð upp:







Samantektir helgarinnar:





Stakir leikir






















Fleiri fréttir

Sjá meira


×